Það var líf og fjör á lóð Barnaspítalans er haldið var upp á hálfrar aldar afmæli barnaspítala Hringsins í dag. Núverandi og fyrrverandi sjúklingar tóku þátt í hátíðahöldunum ásamt starfsfólki, gestum og gangandi enda segir Gunnlaugur Sigfússon barnahjartalæknir mikilvægt fyrir alla aðila, sem tengjast spítalanum að eiga saman góðar stundir sem þessa.