Skjárinn og Já í eitt félag

Sigríður Margrét Oddsdóttir.
Sigríður Margrét Oddsdóttir.

Skipti hf., móðurfélag Símans, hefur ákveðið að stofna nýtt félag, Skjá miðla, um rekstur tveggja dótturfélaga sinna, Já og Skjásins. Framkvæmdastjóri Skjá miðla ehf. verður Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já, en hún heldur því starfi áfram. Björn Þórir Sigurðsson verður nýr sjónvarpsstjóri Skjásins. Starfsmönnum félaganna var tilkynnt um breytingarnar í dag og samhliða því var nýtt skipurit Skjásins kynnt.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Skjárinn sér um rekstur frístöðvarinnar SkjárEinn í sjónvarpi, leigu á myndböndum heima í stofu og aðgengi að alþjóðlegum sjónvarpsstöðvum undir merkjunum SkjárBíó og SkjárHeimur. Já sér um rekstur þjónustunúmeranna 118, 1818 og 1811 og annast útgáfu Símaskrárinnar, rekstur vefsvæðisins Já.is og Gulu síðnanna.

„Já hefur markað sér skýra framtíðarsýn um að vera fyrsta val þegar fólk leitar upplýsinga í dagsins önn auk þess að auðvelda samskipti. Þessi breyting mun ekki hafa nein áhrif á rekstur Já en það verður spennandi að takast á við stefnumörkun og rekstur Skjásins í samstarfi við nýjan sjónvarpsstjóra. Þessi breyting er til þess fallin að byggja upp öflugt miðla- og þjónustufyrirtæki sem hefur að markmiði að skapa viðskiptavinum sínum, starfsmönnum og eigendum hámarksvirði,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjá miðla, í fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert