Konum fjölgar í störfum hjá ríkinu

Konur eru í talverðum meirihluta meðal starfsmanna ríkisins, eða 63%, og hefur þeim fjölgað talsvert frá 1998 þegar þær voru 54% hópsins. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins og er vísað til könnunar á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna, sem gerð var á síðasta ári.

Ekki er jafnmikill munur á kynjunum í fjölda stöðugilda en þar eru konur 61% hópsins. Það skýrist að mestu af því að karlar eru að jafnaði í hærra starfshlutfalli en konur, í um 87% starfi að meðaltali, en konur í um 78% starfi.

Konur eru í miklum meirihluta hjá heilbrigðisstofnunum en þar eru karlar aðeins tæplega fimmtungur starfsmannahópsins. Karlar eru hvergi í jafnafgerandi meirihluta og konur en hæst er hlutfall þeirra hjá stofnunum atvinnu- og samgöngumálaráðuneyta. Meðalaldur ríkisstarfsmanna er 45,4 ár. Konur eru aðeins yngri með tæplega 45 ára meðalaldur en karlar eru ríflega 46 ára gamlir. Yngstur er starfsmannahópurinn hjá stofnunum félags- og lýðheilsumála en hæstur meðalaldur er hjá stofnunum atvinnumálaráðuneyta, umhverfis-, skipulags- og samgöngumála.

Fjármálaráðuneytið segir, að athygli veki að konum í stjórnendastöðum hafi fjölgað frá árinu 1998. Þá voru konur 40% stjórnenda með mannaforráð ef frá eru taldir forstöðumenn stofnana. Nú eru konur tæpur helmingur stjórnenda með mannaforráð, eða 48%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert