Auglýsingar Kaupþings með John Cleese tilnefndar til alþjóðlegra verðlauna

John Cleese í eldhúsinu í auglýsingu Kaupþings.
John Cleese í eldhúsinu í auglýsingu Kaupþings.

Auglýsing Kaupþings með breska gamanleikaranum John Cleese hefur verið tilnefnd sem ein af bestu fyrirtækjaauglýsingum í heimi á Cannes Lions auglýsingahátíðinni í Frakklandi. Auglýsingarnar voru gerðar vegna breytingar á nafni KB-banka í Kaupþing um áramótin og hafði auglýsingastofan NM umsjón með gerð þeirra.

Um fjögur þúsund auglýsingar kepptu um tilnefningu en 30 komust í úrslit. Verða úrslitin tilkynnt á laugardaginn.

Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi keppa auglýsingar frá Adidas, Toyota, og Siemens í sama flokki og auglýsing Kaupþings.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert