Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur stofnað stýrihóp um sjávarútvegsmál sem mun fylgjast með þróun sjávarútvegsmála á næstunni.
Atli Gíslason, fulltrúi Vinstri-grænna í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis, leiðir hópinn en aðrir fulltrúar eru Álfheiður Ingadóttir, Björn Valur Gíslason, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Bjarni Jónsson, Ásbjörn Björgvinsson og Hjörleifur Guttormsson.