Ungmennin þrjú, sem slösuðust í bílslysi á mótum Geirsgötu og Mýrargötu í Reykjavík í nótt, liggja enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans. Að sögn vakthafandi svæfingalæknis á gjörgæsludeildinni verða ungmennin áfram á gjörgæsludeildinni í nótt.
Bíllinn skall á veitingastaðnum Hamborgarabúllunni en ökumaðurinn hafði í aðdragandanum misst stjórn á bílnum og rekist á kyrrstæðan bíl áður en hann skall á húsinu. Lögreglan segir að bílnum hafi verið ekið á miklum hraða í vesturátt og er málið í nánari rannsókn.