Fjölmennt er á Akranesi yfir helgina vegna Kaupþingsmóts í fótbolta. Um 900 börn taka þátt í mótinu, en talið er að um 2500 manns séu í bænum í tengslum við mótið. Engin vandræði hafa hlotist af, samkvæmt upplýsingum lögreglu, og búið er að hægja á umferð í kring um íþróttasvæðið með þar til gerðum merkingum. Tveir gistu í fangageymslum lögreglunnar í nótt en það var mótinu óviðkomandi.