28 ára gamall Íslandingur hefur verið handtekinn með fíkniefni í Brasilíu, að sögn Fréttablaðsins. Blaðið hefur ekki upplýsingar um hve mikið magn fíkniefna var að ræða eða hvaða tegund. Tveir aðrir Íslendingar sitja í fangelsum í Brasilíu fyrir fíkniefnabrot.