Mikil ölvun var í miðborg Reykjavíkur í nótt. Hafði lögreglan í nógu að snúast og voru allar fangageymslur fullar. Nokkrir, sem þar gistu, eiga von á að verða sektaður fyrir brot á lögreglusamþykkt en þeir köstuðu m.a. af sér vatni á almannafæri og neituðu að hlýða fyrirmælum lögreglu.