Sumarsýning Hundaræktarfélags Íslands fór fram í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina. Á sýningunni komu 635 hundar af 75 mismunandi tegundum fram fyrir dómarana. Besti hundur sýningar var valinn St. Bernharðshundurinn Titarnerna Atlas, sem er í eigu Guðnýjar Völu Tryggvadóttur.