Í dag lýkur smábæjarleikunum í knattspyrnu á Blönduósi. Um 700 krakkar í yngstu aldursflokkunum frá 17 stöðum víðvegar um landið sendu 74 lið til keppni. Það hefur verið mikið líf og fjör á Blönduósi um helgina og allt gengið eins og best verður á kosið. Veðrið hefur leikið við keppendur og gesti og aðstaðan öll hin besta.