Helgarleyfinu er lokið og umferðin á götum landsins stefnir í átt að höfuðborgasvæðinu. Miklar bílaraðir eru við helstu umferðaræðar borgarinnar og er umferðin þung í gegnum nágrannasveitafélög. Hleypt er í hollum í gegnum Hvalfjarðargöng. Umferðin hefur að mestu farið vel fram en lögreglan í Borgarnesi minnir ökumenn á að taka ekki fram úr í svo þungri umferð og leggur til að menn hlusti frekar á góða tónlist eða spjalli saman í stað þess að fram úr umferðinni.