Fékk ljósastaur í andlitið

Vinnuslys varð við Sólheima í Reykjavík í morgun þar sem verið var að vinna að því að koma fyrir ljósastaur. Tveir menn héldu við staurinn til að varna því að hann sveiflaðist út á götu, en þegar honum var lyft sveiflaðist staurinn í andlit mannanna. Annar maðurinn slasaðist mikið í andliti, missti tennur og hlaut skurð, en hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Meiðsl hins mannsins eru sögð minniháttar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert