Formúlubíll í Vetrargarðinum

Tæknimenn setja Williamsbílinn saman í Vetrargarðinum.
Tæknimenn setja Williamsbílinn saman í Vetrargarðinum.

Formúlubíll, sem Nico Rosberg ekur við Smáralind á morgun, er kominn til Íslands og hefur verið settur upp í Vetrargarði Smáralindar. Bílnum, sem vegur um 600 kg, fylgir 20 manna starfslið ásamt tæplega 8 tonnum af búnaði. Bíllinn er 2007 útgáfa Williamsliðsins, sem notuð er í tilraunaakstri liðsins á brautum um allan heim.

Baugur Group og Hagkaup sem standa að komu Rosberg og bílsins til landsins. Starfsmenn Williams unnu við samsetningu bílsins í Vetrargarðinum í dag og nýttu til þess fjöldann allan af verkfærum og risatölvu. Eftir að hafa náð réttum vélarhita var bíllinn settur í gang rétt fyrir utan Vetrargarðinn.

Rosberg verður mun aka fjölda hringja við efra bílaplanið við Smáralind. Bílnum verður ýtt út úr Smáralind kl. 13 og mun Rosberg veita eiginhandaráritanir við bílinn kl. 15:30. Fyrsti sýningarakstur Rosberg hefst svo kl. 16.30. Eftir það gefst áhorfendum tækifæri til að skoða bílinn og fá eiginhandaráritun Rosbergs en einnig mun hann tilkynna hvaða viðskiptavinur Hagkaupa hlýtur ferð á Silverstone kappaksturinn þann 8. júlí nk.

Seinni sýningaraksturinn verður kl. 18 og má gera ráð fyrir að dagskrá ljúki um kl. 18:30.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert