Ingibjörg Sólrún á leiðtogafund Afríkusambandsins

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. mbl.is/RAX

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, heldur í dag af stað til Gana þar sem hún mun sækja leiðtogafund Afríkusambandsins sem hófst 25. júní og lýkur 3. júlí.

Dagana 28.–29. júní sitja utanríkisráðherrar Afríku sinn ellefta framkvæmdaráðsfund. Utanríkisráðherra mun þá daga eiga tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Afríkuríkja.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir, að markmið ferðarinnar sé annars vegar að ræða í nálægð afstöðu til þróunarsamvinnu og málefna Afríku, en íslensk stjórnvöld leggi nú stóraukna áherslu á þróunarmál, og hins vegar að ræða málefni Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en starfstími ráðsins fer að miklu leyti í að fjalla um málefni Afríku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert