Vegfarandi kom að þar sem tveir menn voru að bera húsmuni út í garð í Mosfellsbæ um klukkan þrjú í gærdag. Mennirnir tóku á rás er manninn bar þar að og hurfu á braut á bifreið. Vegfarandinn lét lögreglu vita og gaf upp bílnúmerið. Lögreglu reyndist auðvelt að finna mennina sem dvelja nú í fangageymslu og bíða þess að þeir verði yfirheyrðir.
Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem þeir komast í kast við lögin.