Ólafur Ragnar ræðir fíkniefnavandann við borgarstjóra Istanbul

mbl.is

Í morgun átti forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson fund með Kadir Topbas borgarstjóra Istanbul í Tyrklandi og yfirmönnum borgarinnar í félags- og heilbrigðismálum. Viðfangsefni fundarins var baráttan gegn fíkniefnum en Istanbul er í hópi fimmtán evrópskra borga sem tekið hafa saman höndum um viðamikið forvarnaverkefni sem byggt er á rannsóknum við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík og reynslu Reykjavíkurborgar á þessu sviði. Forseti Íslands er verndari þessa evrópska forvarnaverkefnis sem ber heitið Ungmenni í Evrópu: Gegn fíkniefnum.

Í fréttatilkynningu segir að þótt alþjóðavæðing, opnari landamæri og bylting í upplýsingatækni hafi haft fjölmargt jákvætt í för með sér hefur þessi þróun jafnframt auðveldað glæpahringum dreifingu og sölu fíkniefna til ungmenna um Evrópu alla. Sameiginleg varnarbarátta er því brýn nauðsyn.

„Hinar íslensku rannsóknir hafa leitt í ljós hvaða áherslur eru vænlegastar í öflugum forvörnum og voru þær m.a. kjarninn í Forvarnadeginum sem efnt var til á Íslandi síðastliðið haust.

Forseti Íslands lýsti ítarlega hinum íslensku rannsóknum og reynslunni af forvarnadeginum og fagnaði því að Istanbul hefði ákveðið að taka öflugan þátt í þessari baráttu.

Fyrir rúmum mánuði var haldinn í Istanbul samráðsfundur borganna fimmtán sem þátt taka í verkefninu. Borgarstjóri Istanbul ítrekaði persónulegan stuðning sinn og borgaryfirvalda við verkefnið og kynnti ýmsar hugmyndir sem nú væri unnið að í Istanbul til að efla forvarnir meðal ungs fólks. Lyfjafyrirtækið Actavis veitir þessu evrópska forvarnaverkefni öflugan stuðning og sat forstjóri fyrirtækisins í Tyrklandi Melih Gürsoy fundinn í morgun," samkvæmt tilkynningu.

Að loknum fundinum með borgarstjóra heimsótti forseti höfuðstöðvar Actavis í Tyrklandi og ræddi við forystumenn í lyfjaiðnaði landsins. Þar kom fram að Actavis hefur ríkuleg sóknarfæri á tyrkneskum lyfjamarkaði og fóru hinir tyrknesku stjórnendur lofsamlegum orðum um samvinnu við Íslendinga.

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í gær, fimmtudaginn 28. júní, ræðu á þingi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sem nú stendur í Istanbul í Tyrklandi. Í ræðu sinni fjallaði forseti um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og þá lærdóma sem draga megi af nýtingu Íslendinga á endurnýjanlegum orkugjöfum, ekki síst jarðhita. Hann vék einnig að fjölmörgum alþjóðlegum verkefnum í orkuvinnslu sem Íslendingar taka nú þátt í víða um heim. Þá átti forseti fund með Angel Gurría, framkvæmdastjóra OECD þar sem nánar var fjallað um það hvernig reynsla Íslendinga gæti nýst í hinu víðtæka alþjóðlega samstarfi sem framkvæmdastjórinn taldi brýnt að eflt yrði á komandi árum ef takast ætti að koma í veg þær hörmungar sem loftslagsbreytingar gætu leitt til, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert