Talsverð umferð er í átt til höfuðborgarinnar en að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur allt gengið þokkalega og ekki er vitað um nein sérstök óhöpp. Ekki er eins mikil umferð á Vesturlandsvegi og var um síðustu helgi en lögreglumenn stjórna þó umferð af Þingvallavegi inn á Vesturlandsveg.