Alls voru 77 ökumenn stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í vikunni fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast fór ók á 145 km hraða, en við því liggur 90.000 króna sekt.
Fjórir voru teknir fyrir ölvun við akstur í vikunni. Einnig voru þrír ökumenn stöðvaðir en voru að aka án réttinda en höfðu verið sviptir ökuleyfi.