Stálu líkani af kirkju

Kirkjulíkani var stolið úr garði við Kjarrheiði 1 í Hveragerði aðfaranótt sunnudags. Kirkjunnar er að sögn lögreglunnar á Selfossi sárt saknað af eiganda hennar einkum vegna persónulegs gildis. Kirkjan er hvít með rauðu þaki og stærð hennar um 50 X 70 sentimetrar með um 80 sm háum turni.

Hver sá sem veit um kirkjulíkanið er eða getur veitt upplýsingar um hana eru beðnir að setja sig í samband við lögreglu í síma 480 1010 eða íbúa að Kjarrheiði 1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert