Iceland Express flýgur til Luxemborgar í haust

Frá Lúxemborg.
Frá Lúxemborg. mbl.is/Ómar

Iceland Express hefur flug til Luxemborgar í haust og er sala í ferðirnar nýhafin. Flogið verður á þriðjudögum og föstudögum, á tímabilinu frá 28. september til 9. nóvember, og verður farið frá Keflavík síðdegis en frá Luxemborg að kvöldi. Luxemborg verður fjórtándi áfangastaðurinn sem Iceland Express flýgur til.

Flugtíminn milli Keflavíkur og Luxemborgar er um þrjár og hálf klukkustund. Flugleiðir voru lengi með beint flug milli Íslands og Lúxemborgar en hættu því í byrjun ársins 1999.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert