Óheppinn ökumaður hafði samband við lögregluna á Selfossi um klukkan níu í gærkvöldi og óskaði eftir aðstoð hennar. Hafði ökumaðurinn keyrt inn í garð á Þorlákshöfn og þarfnaðist aðstoðar við að koma bílnum aftur á götuna. Engin slys urðu á fólki að sögn lögreglu.