Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um að hámarkslánshlutfall Íbúðalánasjóðs skuli lækkað úr 90% í 80% frá og með 4. júlí.
Lánshlutfallið var hækkað úr 80% í 90% í febrúar sl. með reglugerð sem Magnús Stefánsson, þáverandi félagsmálaráðherra, gaf út og hámarksfjárhæð almennra lána var jafnframt hækkuð úr 17 milljónum króna í 18 milljónir. Áður hafði lánshlutfallið verið lækkað í 80% í júní árið 2006 og hámarkslán jafnframt lækkað í 17 milljónir.
Ýmsir urðu til að gagnrýna það að lánshlutfallið skyldi hækkað og töldu að það yki á verðbólguþrýsting. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn m.a. með því í skýrslu í júní, að hámarkslán og lánshlutfall verði tafarlaust lækkuð.
Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir að undanfarið hefur fasteignaverð farið hækkandi á nýjan leik. Þetta hefur stuðlað að meiri verðbólgu og hærra vaxtastigi en ella sem mikilvægt er að bregðast við. Af þessu tilefni hefur verið ákveðið að lækka lánshlutfall Íbúðalánasjóðs úr 90% í 80%.
„Jafnframt hefur verið ákveðið að vinna að því að efla hinn félagslega þátt húsnæðislánakerfisins, þar með talið leigumarkaðinn og með lánveitingum til fólks undir skilgreindum eigna- og tekjumörkum, samhliða því að skýrar verði skilið á milli almennra og félagslegra lánveitinga. Félagsmálaráðherra mun skipa nefnd sem falið verður að vinna að þessu verkefni og verður frumvarp um það efni lagt fram á komandi þingi," að því er segir í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu.