Í dag er spáð norðaustanátt, víða 3-8 m/s og skýjað með köflum vestantil, en skýjað annars staðar og dálítil væta, einkum um landið norðaustanvert og einnig norðanlands síðdegis. Stytta á upp að mestu í nótt, en aftur rigning og súld austanlands á morgun. Hiti 11 til 19 stig, en 7 til 10 við norður- og austurströndina.