Tíu voru teknir fyrir of hraðan akstur af lögreglunni í Borganesi í gær, þar af voru sjö ökumenn teknir á milli klukkan tíu og hálf tólf í gærkvöldi. Töluverð umferð var í umdæminu í gær. Hraðast ók ökumaður bifhjóls, en hann tekinn af lögreglu fyrir að aka á 136 km hraða þar sem er 90 km hámarkshraði, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi.