Gistinóttum fjölgaði um 14% í maí

Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 116.000
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 116.000 mbl.is/Brynjar Gauti

Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 116.000 en voru 101.500 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 14.500 nætur eða rúm 14%. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi þar sem fjöldinn stóð í stað milli ára, 4.300 nætur.

Aukningin var hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 2.000, úr 8.100 í 10.100 milli ára (26% aukning). Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um rúm 17%, úr 7.600 í 8.900. Á Suðurlandi fór gistináttafjöldinn úr 9.000 í 10.200 milli ára, sem er 14% aukning. Gistinæturnar á höfuðborgarsvæðinu í maí síðastliðnum voru 83.400 en voru 72.600 í sama mánuði árið 2006 sem er aukning um 13,5%, að því er segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Fjölgun gistinátta á hótelum í maí má bæði rekja til Íslendinga (24%) og útlendinga (12%). Gistirými á hótelum í maímánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.790 í 4.390, 15% aukning og fjöldi rúma úr 7.654 í 8.917, 16% aukning. Hótel sem opin voru í maí síðastliðnum voru 78 en 75 í sama mánuði árið 2006.

17% aukning á fyrstu 5 mánuðum ársins

Gistinóttum á hótelum á fyrstu fimm mánuðum ársins fjölgaði um 17% milli ára Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar, mars, apríl og maí samanlögðum voru 410.700 en voru 351.500 fyrir sama tímabil árið 2006. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um rúm 41%, úr 9.800 í 13.800. Aukningin nam 21% á Norðurlandi, 17% á Suðurlandi, 16% á höfuðborgarsvæðinu og 13% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert