Mannréttindadómstóll gagnrýnir kristinfræðikennslu

Mannréttindadómstóllinn gagnrýnir áherslur kristinfræðikennslu í norskum skólum.
Mannréttindadómstóllinn gagnrýnir áherslur kristinfræðikennslu í norskum skólum. mbl/Sverrir Vilhelmsson

Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg kvað upp sögulegan dóm í máli norskra foreldra gegn norska ríkinu þann 29. júní s.l. Um ræðir foreldra sem eru meðlimir í félagi húmanista í Noregi, sem töldu sig vera beitt misrétti vegna fyrirkomulags kennslu í kristinfræði, trúfræði og lífsskoðunum í norska skólakerfinu.

Norska ríkið braut á rétti foreldra

Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að norska ríkið hefði brotið á rétti barna til að fá tilhlýðilega menntun. Dómurinn komst jafnframt að því að brotið hefði verið gegn trú- og samviskufrelsi kærenda og er það í samræmi við niðurstöðu Mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna frá 25. mars 2002.

Í dómnum segir að fyrirkomulag kennslu í kristinfræði, öðrum trúarbrögðum og heimspeki sé þess eðlis að verulega halli á önnur trúarbrögð og aðrar lífsskoðanir en Kristni. Þá sé illfært fyrir foreldra að nýta sér rétt til undanþágu frá trúarbragðakennslu. Þar sem erfitt er fyrir börn og foreldra að forðast iðkun bæna, sálmasöngva, kirkjuþjónustu og trúarleg skólaleikrit á skólatíma er ekki viðeigandi að slík starfsemi fari fram í opinberum skólum. Dómurinn kemst að því að yfirvöld í Noregi hafi ekki gætt þess að námsefni sé borið fram á hlutlausan, gagnrýninn og fjölmenningarlegan máta.

Siðmennt telur niðurstöðuna hafa áhrif á Íslandi

Í fréttatilkynningu Siðmenntar segir að Siðmennt ásamt fleiri aðilum hérlendis hafa bent á sams konar galla í íslenskum skólum og skort á hlutleysi í Námsskrá grunnskóla. Þá hafi Siðmennt bent á að trúarlegar athafnir eins og bænir, kirkjuferðir og trúarleg leikrit og söngvar séu óviðeigandi í opinberum skólum sem eiga að vera fyrir alla. Það sé því ljóst að dómurinn renni stoðum undir gagnrýni Siðmenntar hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka