Útvegsbændur í Vestmannaeyjum mótmæla aðdróttunum um kvótasvindl í útflutningi á gámafiski og krefjast vandaðri umfjöllunar í fjölmiðlum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá útvegsbændum.
„Útvegsbændur í Vestmannaeyjum mótmæla harðlega þeim órökstuddu og illa unnu ásökunum sem birtust í Morgunblaðinu miðvikudaginn 4. júlí um stórfellt tegundasvindl og kvótatilfærslu sem eigi sér stað við útflutning á ferskum fiski í gámum. Frá Vestmannaeyjum fer um þriðjungur útflutnings ísfisks í gámum á markaði í Bretlandi og Þýskalandi. Með beinum hætti er því vegið í greininni að starfsheiðri útvegsbænda í Vestmannaeyjum. Við slíkt verður ekki unað.
Í grein Morgunblaðsins eru ýmsar rangfærslur en þær alvarlegustu snúa að eftirlitskerfi með gámaútflutningi á ísfiski. Upplýsinga er augljóslega ekki aflað hjá Fiskistofu um framkvæmd eftirlitsins heldur dregin upp fullkomlega röng mynd af framvæmd þess og ásakanir, m.a. í fyrirsögn greinarinnar, byggðar á henni.
Strangt eftirlit er af hálfu Fiskistofu með gámaútflutningi, bæði í útflutningshöfn hér heima og á mörkuðum erlendis. Áætluð aflasamsetning er tilkynnt Fiskistofu strax og fiskiskip er á leið til löndunar, samanburður fer fram á upplýsingum við löndun, vinnslu og útflutning. Upplýsingar um eftirlitskerfið má finna í starfsyfirliti á vef Fiskistofu. Í grein Morgunblaðsins er hins vegar látið að því liggja að eftirlitskerfi með gámaútflutningi sé lítið sem ekkert og misnotað alvarlega. Með því er vegið að starfsheiðri m.a. útvegsmanna, skipstjóra, vigtarmanna, löndunarmanna og eftirlitsmanna Fiskistofu. Engar sannanir þessu til stuðnings er að finna í greininni, enginn heimildarmaður tilgreindur og engin sjálfstæð rannsókn blaðsins fer fram.
Í grein Morgunblaðsins er fullyrt að ekkert eftirlit sé á mörkuðum erlendis með innihaldi ferskfiskgáma og dylgjað um að markaðirnir sjálfir reki tvöfalt bókhald til að taka þátt í kvótasvindli á Íslandi! Sem fyrr tilgreinir blaðið engar sannanir máli sínu til stuðnings. Morgunblaðinu skal aftur bent á upplýsingar í opinberum gögnum Fiskistofu um starf fulltrúa hennar á fiskmörkuðunum í Bretlandi og Þýskalandi. Fullyrðingum um að ekkert eftirlit sé erlendis af hálfu Fiskistofu er því vísað á bug.
Fimmtudaginn 5. júlí hélt Morgunblaðið áfram vangaveltum í leiðara blaðsins á grunni hinnar óvönduðu greinar frá því deginum áður. Segir blaðið liggja fyrir að leiðir séu framhjá kvótakerfinu með m.a. útflutningi á ferskum fiski í gámum. Þeirri fullyrðingu í leiðaranum mótmæla útvegsbændur í Vestmanneyjum harðlega að útgerðarmenn taki ekki alvarlega umræðu um kvótasvindl. Hins vegar verður að gera verður þá kröfu til fjölmiðla að þeir vandi sína umfjöllun og uppfylli sínar skyldur í opinberri umræðu.
Í tilefni af grein Morgunblaðsins hafa útvegsbændur í Vestmannaeyjum sammælst um að hvetja blaða- og fréttamenn til að koma til Vestmanneyja fyrirvaralaust á næstu vikum, fá aðgang að öllum gögnum um afla, löndun og gámaútflutning og fylgjast með löndun úr fiskiskipum og lestun í gáma. Leiði slík könnun í ljós, að mati starfsmanna Fiskistofu, misræmi við gögn eða aðra samsetningu á afla en að jafnaði misserin áður en könnunin fer fram má ætla að óeðlilega sé eða hafi verið staðið að verki. Að öðrum kosti fengist með könnuninni staðfesting á að sviksemi í ísfiskútflutningi sé á engan hátt sú sem látið er að liggja í grein Morgunblaðsins.
Starfsmenn útgerða munu veita allar þær upplýsingar sem óskað er eftir við könnun fréttamanna og Fiskistofa hefur einnig samþykkt að veita frétta- og blaðamönnum alla þá aðstoð sem þeir kunna að leita eftir í sambandi við rannsóknina. Jafnframt hvetjum við til að fjölmiðlar fullkomni rannsókn sína með heimsókn á markaðina í Bretlandi eða Þýskalandi þar sem þeir fái aðgang að gámum og pappíra þar að lútandi. Starfsmenn Fiskistofu á mörkuðunum munu einnig veita alla þá aðstoð sem óskað er eftir.
Útvegsbændur telja nauðsynlegt að umræðu uppfullri af dylgjum og aðdróttunum ljúki og staðreyndirnar verðir leiddar í ljós," samkvæmt fréttatilkynningu frá útvegsbændum.