Margeir Steingrímsson, íbúi á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri, hefur fært Öldrunarheimilum Akureyrar peningagjöf að upphæð 3 milljónir króna. Gjöfin rennur í gjafasjóð Öldrunarheimila Akureyrar og á að nýta til að bæta og endurnýja húsbúnað og tæki heimilanna.