Alls var 1033 kaupsamningum um fasteignir þinglýst við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní. Heildarvelta nam 28,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 27,8 milljónir króna. Þetta er 6,6% fjölgun kaupsamninga frá því í maí og 71,9% fjölgun frá júní í fyrra.
Í maí var þinglýst 969 kaupsamningum, velta var 29,2 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,2 milljónir króna. Í júní 2006 var þinglýst 601 kaupsamningi, velta var 15,4 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 25,6 milljónir króna.