Tveir karlmenn á fimmtugsaldri eru í haldi hjá lögreglu vegna vopnaðs ráns sem framið var í verslun 10-11 á Barónsstíg um miðnætti. Þeir voru handteknir á Skúlagötu ekki langt frá ránsstaðnum. Nú er þess beðið að víma renni af þeim og verða þeir yfirheyrðir hjá lögreglu þegar líður á daginn. Ekki er vitað til þess hvort vopnið sem var notað var ekta. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglunnar.