Dró 200 kílóa lúðu um borð

Bragi Steingrímsson með lúðuna stóru.
Bragi Steingrímsson með lúðuna stóru. Suðurland.is

Bragi Stein­gríms­son, skip­stjóri á Þrasa VE 20 dró tæp­lega tvö hundruð kg. lúðu úr haf­inu í dag. Bragi kom með afl­ann að landi nú síðdeg­is en auk lúðunn­ar var hann með um 800 kg. af öðrum afla, mest ufsa.

Bragi sagði í sam­tali við Suður­land.is að erfiðlega hefði gengið að ná lúðunni um borð en hann hafi notið aðstoðar nærstaddra trillu­sjó­manna, sem hefðu hoppað um borð í Þrasa til að aðstoða við glím­una.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert