Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Norðurárdal í Skagafirði að morgni sunnudagsins 8. júlí s.l. hét Þorbergur Gíslason til heimilis að Hveramýri 2, Mosfellsbæ. Hann var tuttugu og eins árs, ókvæntur og barnlaus, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri.