Fyrsta skrefið í innleiðingu vetnisfólksbíla á Íslandi var tekið í dag þegar Friðrik Sophusson og Guðmundur Þóroddsson tóku við vetnisbíl frá DaimlerChrysler fyrir hönd Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta er fyrsti fólksbílinn sem fer í almenna umferð á Íslandi og knúinn er með vetnisrafala. Hann verður í sameiginlegri notkun Orkuveitunnar og Landsvirkjunar.
Fram kemur í fréttatilkynningu að Íslensk NýOrka hafi ásamt VistOrku, sem orkufyrirtækin eiga stóra hluti í, samið um að útvega 11 vetnisbíla til viðbótar, af mismunandi gerð, sem afhentir verða ýmsum aðilum síðar á árinu. Verkefni þetta heitir SMART-H2 og markmiðið er að fjölga vetnisbílum á Íslandi í a.m.k. 30 fyrir 2010.
Bíllinn sem DaimlerChrysler afhenti í dag er Mercedes Benz af A-class gerð og ryðja orkufyrirtækin í sameiningu brautina í akstri vetnisfólksbíla með rekstri bílsins. Fram til 1. ágúst nk. verða starfsmenn fyrirtækjanna í þjálfun í rekstri og viðhaldi vetnisbílsins, en síðan fer hann í almennan rekstur sem þjónustubíll. Fyrirtækin leigja bílinn af DaimlerChrysler og munu annast gagnaöflun um rekstur hans og frammistöðu.
Um er að ræða mikilvægan áfanga að því markmiði sem ríkisstjórn Íslands hefur sett, að Ísland verði fyrsta samfélagið til að reiða sig eingöngu á endurnýjanlega orku. Fólksbílaverkefnið kemur nú í eðlilegu framhaldi af vetnisstrætisvögnunum sem reyndust vel. Samstarf orkufyrirtækja í framþróun í orkumálum hefur verið mikið og hafa Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur bæði markað sér stefnu um að vera fyrirmynd í umhverfismálum. Samgöngur eru þar mikilvægur þáttur og með vistvænni bílaflota, sem getur nýtt innlendar vistvænar orkuauðlindir, er tekið skref í rétta átt.
Nýi vetnisbíllinn er lipur smábíll frá DaimlerChrysler og verður hann nýttur innan þjónustuflota fyrirtækjanna. Bíllinn tekur vetni á vetnistöðinni á Grjóthálsi þar sem það er unnið úr vatni með rafmagni. Bíllinn tekur 4 farþega og er bæði efnarafalanum og vetninu komið fyrir í undirvagninum svo að farangursrýmið er af sömu stærð og í bensínbílum sömu gerðar. Bíllinn dregur 160 km á hverjum tanki. Viðbragðstíminn úr núlli í hundrað km/klst er 14 sekúndur og hægt er að aka honum á allt að 140km/klst. Rafhreyfillinn er gíralaus með 65 kW afl.