Byrjað að ljósleiðaravæða Sauðárkrók í sumar

Frá Sauðárkróki.
Frá Sauðárkróki. mbl.is/Einar Falur

Framkvæmdir hefjast í sumar á vegum Gagnaveitu Skagafjarðar við að ljósleiðaravæða Sauðárkrók. Áætlað er að ljúka verkinu árið 2009. Gagnaveita Skagafjarðar mun síðan reka ljósleiðaranetið og selja aðgang að því fyrir fasta mánaðarlega upphæð en arir aðilar munu veita þjónustu inn á kerfið svo sem hefðbundna netljónustu og sjónvarpsdreifingu.

Gagnaveita Skagafjarðar var stofnuð árið 2006. Eigendur hennar eru Sveitarfélagið Skagafjörður, Skagafjarðarveitur, Kaupfélag Skagfirðinga, Byggðastofnun, Fjölnet og smærri aðilar. Tilgangur Gagnaveitunnar er að leggja ljósleiðara inn á hvert heimili á Sauðárkróki og víðar í þéttbýli eftir því sem aðstæður skapast og taka þátt í uppbyggingu á háhraðatengingum í dreifbýli Skagafjarðar.

Í drögum að framkvæmdaáætlun hefur bænum verið skipt upp í fjögur verksvæði: Túnahverfi, Hlíðahverfi, syðribæ og útbæ. Hafist verður handa í Túnahverfi í sumar og er áætlað að þar verði öll hús tengd í haust. Því næst verður haldið í Hlíðahverfi, þá syðribæinn og loks útbæinn. Áætlað er að ljúka þessu verkefni 2009. Verður Sauðárkrókur þar með kominn í hóp þeirra þéttbýlisstaða sem tekið hafa forystu í möguleikum í nýtingu á upplýsingatækni.

Ljósleiðarinn verður lagður inn fyrir veggi heimila í sérstakt inntaksbox, íbúum að kostnaðarlausu. Um leið og ljósleiðaratengingin er virkjuð er tengibox sett upp annarsstaðar á heimilinu og strengur lagður á milli inntaksboxins og þess. Úr þessu tengiboxi er síðan lagt í tölvur, sjónvörp, síma og þau tæki sem tengja á.

Samhliða lagningu hitaveitu út að austan og á Hofsósi verða lögð ljósleiðararör sem dregið verður í þegar tækifæri gefst. Það sama má segja með ljósleiðararör í Akrahreppi sem lögð voru samhliða hitaveitu þar.

Gagnaveitan hefur ákveðið að taka þátt í uppbyggingu á háhraðaneti í dreifbýli Skagafjarðar. Hefur fyrirtækið sent inn upplýsingar til Fjarskiptasjóðs og afmarkað sér svæði innan héraðsins þar sem það hyggst byggja upp háhraðanettengingar. Þarf því að vera lokið fyrir 1. júlí 2008.

Heimasíða Gagnaveitu Skagafjarðar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert