Maðurinn sem brenndist á andliti eftir að eldur kom upp í bíl, sem hann var í, liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann er með meðvitund og líðan hans er stöðug að sögn vakthafandi læknis. Eldurinn í bílnum kviknaði út frá gasi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum. Ekki er vitað meira um málsatvik að svo stöddu.
Maðurinn var einn á ferð þegar slysið varð. Hann var fluttur með sjúkraflugi á slysa- og bráðadeild Landspítalans í dag, ásamt manni sem stigið hafi ofan í hver.