Hátt í þúsund manns voru samankomin á Stokkseyrarbryggju í kvöld við setningarathöfn hinnar árlegu Bryggjuhátíðar. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar mætti á svæðið og Árni Johnsen stjórnaði bryggjusöng við stóran varðeld. Fjölbreytt dagskrá er á Stokkseyri um helgina en hátíðinni lýkur á sunnudag.