Staðinn að þjófnaði á lögreglustöð

Seint í gærkvöld var karlmaður um þrítugt handtekinn á svæðisstöð lögreglunnar á Dalvegi í Kópavogi. Ekki er vitað hvort maðurinn átti erindi við lögregluna en þegar þangað kom stakk hann inn á sig nokkrum hlutum sem voru í anddyri svæðisstöðvarinnar.

Honum var gert að skila þeim aftur, en brást þá illa við. Maðurinn, sem var ölvaður, sinnti í engu fyrirmælum lögreglu og var færður í fangageymslu þar sem hann var látinn sofa úr sér vímuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert