Kvöldroðinn var fallegur seint í gærkvöldi, eftir enn einn sólardaginn í höfuðborginni. Næsta sólarhring spáir veðurstofan norðlægri eða breytileg átt og 3-8 m/s. Skýjað verður og sums staðar súld á annesjum norðan- og austanlands.
Stöku skúrir kunna að verða sunnan til, en bjart að mestu vestanlands og víða inn til landsins. Hitinn verður 11 til 18 stig, þar sem hlýjast er í uppsveitum suðvestanlands, en heldur svalara við norður- og austurströndina.