Bifhjólamaður á fertugsaldri lést eftir árekstur við strætisvagn á Akrafjallsvegi við Akranes í kvöld. Slysið varð á gatnamótum Akrafjallsvegar og Innesvega og er Akrafjallsvegur ennþá lokaður vegna atviksins. Sagt var frá þessu í tíufréttum Ríkissjónvarpsins.