Helgarumferðin gekk að mestu vel

Rólegt var hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Töluverð umferð var til borgarinnar í gærkvöldi en hún gekk vel að undanskildum töfum sem urðu í kjölfar umferðarslyss á Vesturlandsvegi við Þingvallaveg um klukkan sex. Þrír voru fluttir á slysadeild eftir slysið en meiðsl þeirra reyndust minniháttar. Slysið olli töfum í um tvo klukkutíma. Þá varð að lok Hvalfjarðargöngunum tvisvar í hálftíma í senn vegna umferðarþunga í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert