Bæjarstjórn Akureyrar ályktar vegna skerðingar á aflaheimildum

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær ályktun vegna skerðingar á aflaheimildum.

„Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum af væntanlegum niðurskurði í aflaheimildum á þorski og þeim afleiðingum sem sá samdráttur mun hafa á atvinnulíf í Eyjafirði og á Norðurlandi öllu. Bæjarstjórn hvetur því ríkisstjórn Íslands  til að ráðast nú þegar í  margháttaðar aðgerðir í Eyjafirði sem munu bæta innviði og hafa jákvæð áhrif á efnahagslíf landshlutans.

Greinargerð
Óumdeilt er að ákvörðun sjávarútvegsráðherra mun hafa afgerandi áhrif á útgerðir, fiskvinnslu og afleidda þjónustu í Eyjafirði og þar með launþega og sveitarfélög.

Ljóst er að niðurskurðurinn mun hafa mikil áhrif í Eyjafirði því gert er ráð fyrir að heildarafli þorsks  muni dragast saman um  8000 tonn á svæðinu. Þegar litið er á tölur fyrir Norðurland eystra kemur fram að sá landshluti er með hæstu aflahlutdeildina í þorski eða um 22,5% og um 74% af afla skipa svæðisins er landað í heimahöfn. Á Norðurlandi eystra er líka mikil landvinnsla á þorski en um 35 þúsund tonn voru unnin hér á síðasta ári.

Bæjarstjórn Akureyrar óskar því tafarlaust eftir viðræðum við ríkisstjórnina um atvinnumál Eyjafjarðarsvæðisins."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert