Ölvaður ökumaður á stolnum bíl

Nítján ára piltur var tekinn fyrir ölvunarakstur í Garðabæ í nótt en sá reyndist vera á stolnum bíl. Bíl var einnig stolið í austurborginni um hádegisbil í gær en bíllinn kom svo í leitirnar nokkrum klukkutímum síðar þegar hann fannst við heimili eigandans. Mun nágranni hafa tekið bílinn en ekki er vitað hvað honum gekk til, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert