Árekstur í nágrenni Ásbyrgis

Engan sakaði í hörðum árekstri sem átti sér stað á vegamótum við sundlaugina í Lundi og þjóðveg um Öxarfjörð á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Fólksbíl var ekið í veg fyrir jeppa með fyrrgreindum afleiðingum og er bíllinn mikið skemmdur. Lögregluvarðstjóri á Húsavík segir að frekari upplýsingar um óhappið liggi ekki fyrir að svo stöddu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert