Líkamsárás kærð til lögreglu á Suðurnesjum

Lögreglan þarf að taka á ýmsum málum.
Lögreglan þarf að taka á ýmsum málum. mbl.is/Júlíus

Ein líkamsárás var kærð til lögreglu á Suðurnesjum í nótt en nokkur erill var hjá lögreglu vegna skemmtanalífsins í Reykjanesbæ í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór þó allt stóráfallalaust fram. Einn ökumaður var í nótt kærður fyrir meinta ölvun við akstur.

Undir kvöld í gær barst tilkynning til lögreglunnar á Suðurnesjum að maður hafi fallið af hestbaki við Mánagrund. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Talið er að meiðsl mannsins séu minniháttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert