Ekkert nethappdrætti á vegum Vodafone

mbl.is

Vegna fjölda fyrirspurna sem Vodafone hefur borist í dag um tölvupóst í dreifingu, þar sem móttakendum er tilkynnt að þeir hafi unnið stórfé í meintu nethappdrætti Vodafone í Hollandi, skal tekið fram að um gabb er að ræða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vodafone á Íslandi.

Fólk er þess vegna hvatt til að svara ekki umræddum tölvupósti, enda er hann augljóslega tilraun óprúttinna aðila til að misnota Vodafone. Vodafone hefur tilkynnt athæfið til lögreglu, sem hvetur þá sem fá tölvupóst af þessu tagi til að tilkynna það á netfangið he@rls.is, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert