Ráðherra leggur til að stjórnsýsla lítilla virkjana verði tekin til endurskoðunar

Eftir Friðrik Ársælsson

fridrik@mbl.is

"Eftir að hafa skoðað þessi mál, sem varða Múlavirkjun og Fjarðarárvirkjun, er ég þeirrar skoðunar að stjórnsýslan í kringum þessar litlu virkjanir sé of veik. Ég tel að það eigi að vera regla að setja rennslisvirkjanir, þó að þær séu undir 10 megavöttum, sem minnsti grunur leikur á um að geti orðið umdeildar, í umhverfismat. Með því fá borgararnir tækifæri til þess að gera sínar sterkustu athugasemdir við virkjanir af þessu tagi," segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra. Hann segist munu leggja það til að stjórnsýsla lítilla virkjana verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. "Það liggur fyrir að lítil sveitarfélög, sem hafa innan vébanda sinna virkjanir af þessu tagi, eru eðlilega vanburðug til þess að standa að nákvæmu eftirliti með þessum framkvæmdum, sem stóru virkjanirnar þurfa ætíð að sæta."

Tímabundið leyfi í skoðun

Össur segir að úr því sem komið er sé skynsamlegasta lausnin að veita Múlavirkjun ehf. tímabundið virkjunarleyfi, með ströngum skilyrðum um mótvægisaðgerðir til þess að vernda umhverfi virkjunarinnar. Ef mótvægisaðgerðirnar skili ekki tilætluðum árangri verði leyfið fellt úr gildi að fjögurra til fimm ára gildistímanum loknum. "Þetta er kannski salómonsdómur en við megum ekki gleyma því að nálgun manna í upphafi miðaði að því að vernda umhverfishagsmunina. Spurningin er hvort við náum að vernda þá, þrátt fyrir þessi glappaskot og þetta skeytingarleysi framkvæmdaraðilans. Þarna er snöggur blettur á stjórnsýslunni og við verðum að draga lærdóm af þessu máli."

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka