Sluppu með skrekkinn eftir bílveltu

Bifreiðin er mikið skemmd eins og sést á þessari mynd.
Bifreiðin er mikið skemmd eins og sést á þessari mynd. mbl.is/Jónas Erlendsson

Erlendir ferðamenn sluppu með skrekkinn þegar bifreið sem þeir voru í valt heila veltu í Skaftártungu í Skaftárhreppi vestan við bæinn Ása um kl. 17:30 í dag. Að sögn lögreglunnar á Kirkjubæjarklaustri missti ökumaður bifreiðarinnar stjórn á henni í lausamöl með fyrrgreindum afleiðingum.

Ferðamennirnir, ítalskur karlmaður og kona, sluppu ómeidd sögn lögreglu. Þau voru að koma frá Landmannalaugum þegar óhappið varð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert