2.300 skjálftar við Upptyppinga frá febrúar

Við Öskjuvatn.
Við Öskjuvatn. mbl.is/Friðþjófur Helgason

Skjálftavirknin við Upptyppinga, norðan Vatnajökuls, heldur áfram. Ein öflugasta hrinan stóð yfir frá því klukkan hálf fjögur í fyrrinótt, aðfararnótt 31. ágúst og fram eftir degi. Önnur hrina hófst svo klukkan hálf fjögur í nótt, en sú hrina var að mestu leyti yfirstaðin klukkan sex í morgun. Alls hafa mælst yfir 130 skjálftar í þessum tveimur hrinum, segir á fréttavef Veðurstofu Íslands.

Skjálftavirkni hófst við Upptyppinga í lok febrúar og hefur haldið áfram með hléum fram til þessa. Frá því í lok maí hefur verið dagleg virkni á svæðinu. Alls hafa mælst um 2.300 skjálftar á stærðarbilinu -0,5 til 2,2 á svæðinu. Virknin er bundin við afmarkað svæði, en færist til innan þess svæðis.

Skjálftarnir eru allir á 15 til 20 kílómetra dýpi ef frá eru taldir örfáir grunnir skjálftar sem urðu vikuna 24. til 30. júní og nú á seinustu dögum, að því er kemur fram á heimasíðunni.

Þá segir að „með áframhaldandi og ákveðnari virkni aukist líkur á að eldgos geti hafist. Það eru þó mörg dæmi um skjálftavirkni tengdri kvikuhreyfingum, án þess að gos hafi orðið í kjölfarið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert