Bílvelta varð á Hælsvegi skammt frá bænum Geldingaholti í Gnúpverjahreppi um kl. 20 í kvöld. Að sögn lögreglu voru fimm manns í bifreiðinni og var ein kona flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Reykjavík, en hún er talin vera mikið slösuð. Konan var með áverka á hrygg og hálsi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi liggja tildrög slyssins ekki fyrir.